|
Ég fékk þá flugu í höfuðið að setja pínu pistil hér inn. Af mér er allt gott að frétta. Ég er enn og aftur búin að mflitja og bí eins og er í yfir 100 ára gömlu húsi á Eskifirði. Ég er alltaf að vinna þó ég nenni því ekki en ég læt mig hafa það. Ég er að legja með Hirti félaga mínum og við erum ekki búnir að koma okkur betur fyrir en það að við gistum báðir í stofuni hehe enda föttuðun við það að rúmið mitt kemst ekki uppá efrihæðina, smá fail það hehe. Bíllinn er kominn á ný dekk sem ég fékk á 120.000 kall og Veigar flutti fyrir mig austur þessi elska :D Svo reddaði Bjarni Freyr mér aðgang að dekkjavél og aðstoðaði mig að að umfelga þannig að þetta slapp allt voða vel peningalega séð hjá mér. Mamma og pabbi ætla að koma til mín um jólin og vera framm yfir jól eða í sirka viku. en ég er ekkert farinn að taka eftir þessum jólum frekar en síðustu þrjú jól en ég er búinn að vera ða vinna þá og verð að vinna aftur þessi jól þannig að þau eru ekkert að þvælast fyrir mér nema þessi helvítis jólalög sem er alltaf verið að spila og ég er strax kominn með leið á þeim... Það er búið að vera nóg að gera hjá björgunarsveitinni hér, Vorum td í Mjög erfiðu útkalli á Föstudaginn þar sem við flutttum slasaða rjúpnaskyttu til byggða. Ég var ekki endurkjörinn í stjórn þetta árið en þá er maður líka laus við allt nöldur og getur farið að nöldra sjálfur hehe. Ég er líka hættur sem umsjónarmaður unglingadeildarinnar. Ekki er enn ákveðið hvenar ég kem vestur næst en það gæti orðið langt í það en það verður skrírið að upplifa áramótin í fyrsta sinn á ææfinni annarstaðar en í Hamrahlíðinni með fjölskilduni. En Eskfirðingar fá þá bara að njóta nærveru minnar í staðinn þar sem maður ferður auðvitað með puttana í flugeldasýningu eins og fyrri ár. Ég held að ég hafi þetta ekki lengra. Ég man ekkert meira sérstakt til að skrifa um... Kveðja Kjullibangsi :D
There are 1 comments for this article. Click here to add a comment |